Aldís Hafsteinsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, gerir ráð fyrir því að bætur vegna falls Hamarshallarinnar verði um 108 milljónir króna.
Íþróttahöllin féll í óveðri í byrjun árs. Aldís segir að ákvörðun um endurreisn hallarinnar hafi reynst umdeild og að framtíð hallarinnar sé í höndum nýs meirihluta.
„Sú ákvörðun að panta nú þegar nýjan dúk á Hamarshöllina í stað þess sem rifnaði í óveðri í febrúar var afar umdeild,“ skrifar Aldís í pistli á heimasíðu Hveragerðisbæjar.
Meirihluti hennar féll í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru fyrir um tveimur vikum síðan.
„Í ljósi niðurstöðu kosninga og þeirrar miklu umræðu sem fram fór hefur bæjarstjóri átt viðræður við forsvarsmenn Duol sem sýna munu því ríkan skilning ef að nýr meirihluti vill afpanta dúkinn.
Því er ljóst að nýr meirihluti ætti ekki að vera bundinn af fyrri ákvörðun og getur því tekið ákvörðun fljótlega um að hefja viðræður um afpöntun á dúk Hamarshallarinnar og hafið samstundis könnun á öðrum valkostum varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði.“
Heimild: Mbl.is