SN1-01 : Suðurnesjalína 1 – 132 kV jarðstrengur – jarðvinna og lagning.
Landsnet óskar eftir tilboðum í verk vegna Suðurnesjalínu 1 sem aðgengileg eru útboðvef Landsnets.
Verkið felst í að grafa fyrir og leggja 132 kV jarðstreng, Suðurnesjalínu1 (SN1) um 3,3 km leið í Reykjanesbæ, frá væntanlegu tengivirki Landsnets á Njarðvíkurheiði að tengivirki Landsnets á Fitjum.
Útboðsgögn afhent: | 20.05.2022 kl. 14:30 |
Skilafrestur | 14.06.2022 kl. 14:00 |
Áætlaður verktími er frá júní/júlí-nóvember 2022.
Nánari lýsingu á verkinu er að finna í útboðsgögnum.