Home Fréttir Í fréttum Skoða að stækka jarðgufuvirkjun á Þeistareykjum um 45 megavött

Skoða að stækka jarðgufuvirkjun á Þeistareykjum um 45 megavött

103
0
Frá Þeistareykjum. Virkjað afl er núna 90 megavött. ARNAR HALLDÓRSSON

Landsvirkjun skoðar nú þann möguleika að stækka Þeistareykjavirkjun í Þingeyjarsýslum um 45 megavött. Það þýddi meiri boranir á svæðinu eftir jarðgufu.

<>

Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. Framkvæmdir við jarðgufuvirkjunina á Þeistareykjum hófust árið 2014 og tóku fjögur ár. Samtímis var háspennulína lögð til Bakka þar sem orkan nýtist kísilveri PCC en virkjunin er 28 kílómetra suðaustan Húsavíkur. En núna er Landsvirkjun farin að huga að stækkun Þeistareykjavirkjunar.

Úr stöðvarhúsi Þeistareykjavirkjunar.
ARNAR HALLDÓRSSON

„Sú stöð var gangsett árið 2017 og 2018 og er í dag með tvær vélar. En hún var einnig hönnuð þannig að sá valkostur var til staðar að bæta við þriðju vélinni síðar meir og það erum við farin að horfa til að gera núna,“ segir Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar.

Við virkjun vatnsafls er orkuuppsprettan vel sýnileg en það á ekki eins við um gufuorkuna, sem beisluð er úr iðrum jarðar.

Ásbjörg Kristinsdóttir framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar.
EGILL AÐALSTEINSSON

„Við höfum nálgast þetta svæði mjög varfærnislega, nýtingu á jarðvarma á þessu svæði, en við teljum að svæðið sé vel í stakk búið að taka á móti þriðju vélinni, stöðin sem í dag er 90 megavött. Þarna væri hægt að bæta við þá nýrri 45 megavatta vél.“

Boraðar hafa verið sautján gufuborholur á Þeistareykjum og hafa tólf þeirra verið tengdar við stöðina en áætlað hefur verið að svæðið beri allt að 200 megavatta virkjun. En þarf að bora meira?

„Já, þessari framkvæmd myndi fylgja frekari borun á svæðinu,“ svarar Ásbjörg.

Jarðborinn Sleipnir á Þeistareykjum árið 2016.
STÖÐ 2/FRIÐRIK ÞÓR HALLDÓRSSON

Landsvirkjun áformar þó að 95 megavatta vatnsaflvirkjun í Þjórsá, Hvammsvirkjun, verði næst á dagskrá, með byrjunarframkvæmdum jafnvel þegar í haust. Framkvæmdir á Þeistareykjum gætu síðan fylgt í kjölfarið.

„Ef við myndum flýta þessari framkvæmd þá gæti hún verið komin á útboðshönnunarstig á næsta ári,“ segir framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar.

Heimild: Visir.is