Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í verkið “Vestmannaeyjabær – Hásteinsvöllur, Vallarlýsing”
Útboðsverkið felur í sér:
• Hönnun, útvegun, uppsetningu og frágang á ljósamöstrum.
• Hönnun, útvegun, uppsetningu og frágang á LED flóðlýsingu með viðeigandi stjórnbúnaði og fullnaðarfrágangi.
Lokaskil verks eru þann 30. júní 2026.
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með þriðjudeginum 25. nóvember 2025 kl.14:00.
| Útboðsgögn afhent: | 25.11.2025 kl. 14:00 |
| Skilafrestur | 16.12.2025 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 16.12.2025 kl. 14:00 |
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en þriðjudaginn 16. desember kl. 14:00












