F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Hverfið mitt 2021-2022 austur – jarðvinna, útboð 15514
Í síðustu hverfakosningum Hverfið mitt 2021-22 kusu íbúar í Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi, Kjalarnesi og Grafarholti og Úlfarsárdal, ýmis verkefni til framkvæmda.
Verkið felst m.a. í smíði grillskýlis í Úlfarsárdal og sjósundsaðstöðu við Geldinganes, bæta lýsingu við göngustíga í Breiðholti, lagningu malarstíga í Úlfarsárdal og uppsetningu bekkja og gerð áningarstaðar á Kjalarnesi.
Verklok: 15. september 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00, 25. apríl 2022.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30, 9. maí 2022.