Home Fréttir Í fréttum Borgin telur Nýja Skerjafjörð ekki trufla rekstur flugvallar

Borgin telur Nýja Skerjafjörð ekki trufla rekstur flugvallar

135
0
Pavel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, er formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. EGILL AÐALSTEINSSON

Talsmenn borgarstjórnarmeirihlutans vilja hefja uppbyggingu Nýja Skerjafjarðar sem allra fyrst og hafna því að byggingar þar skerði rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 var rifjað upp að vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði tilkynnti Innviðaráðuneytið í bréfi til borgarstjóra í síðasta mánuði að hverskyns aðgerðir af hálfu borgarinnar, sem skerði rekstraröryggi vallarins, séu í andstöðu við tveggja ára gamalt flugvallarsamkomulag vegna Hvassahrauns.

Borgin hefur núna svarað ráðuneytinu þar sem hún fullyrðir að hvorki flugöryggi né rekstraröryggi vallarins eigi að vera stefnt í hættu. Ótvírætt sé að uppbygging nýja Skerjafjarðar gangi ekki í berhögg við samkomulagið.

Svarbréf Reykjavíkurborgar

Pavel Bartoszek, formaður skipulags- og samgönguráðs borgarinnar, vitnar í sérfræðinga geimferðastofnunar Hollands.

„Þeirra niðurstaða var sú að áhættan vegna vindbreytinga sé ásættanleg, eða viðráðanleg, og eigi ekki að koma í veg fyrir uppbyggingu hins nýja Skerjafjarðar,“ segir Pavel.

Séð yfir svæðið í Skerjafirði sem borgin áformar að leggja undir íbúðabyggð. REYKJAVÍKURBORG

Niðurstaða Isavia, og einnig öryggisnefndar atvinnuflugmanna, sem einnig vitna til Hollendinganna, er að sviptivindar vegna nýrra bygginga á svæðinu við ákveðnar aðstæður kalli á mildunarráðstafanir, sem óhjákvæmilega skerði notkunarmöguleika vallarins.

„Þær er að mínu mati flugtæknilegs eðlis. Þær felast þá í því að ákveða í hvaða vindátt er lent eða með aukinni þjálfun flugmanna. En við teljum ekki að það sé með neinu móti hægt að lesa út úr þessum skýrslum að við eigum að hætta við eða bíða enn frekar með þessa uppbyggingu, sem við erum mjög spennt fyrir,“ segir Pavel.

Stefnan um nýtt íbúðahverfi á svæðinu hafi verið mörkuð í skipulagi.

„Þar sem munu í heild búa kannski um þrjú-fjögurþúsund manns. Þar verður nýr grunnskóli, frábært aðgengi fyrir gangandi og hjólandi. Þannig að við segjum bara: Áfram gakk með þetta verkefni.“

Fyrirhugað íbúðahverfi Nýja-Skerjafjarðar.
REYKJAVÍKURBORG

-Þið viljið ekki bíða þangað til niðurstaða kemur um Hvassahraun?

„Ég tel enga ástæðu til þess. Það vantar íbúðir í Reykjavík í dag. Við höfum enga ástæða til að bíða eftir því.

Enda gerir samkomulagið við ríkið um Hvassahraun ekki ráð fyrir því að það sé beðið eftir niðurstöðunni með Hvassahraun þangað til ráðist er í þessa uppbyggingu. Þvert á móti,“ svarar Pavel Bartoszek.

Flugmálayfirvöld hyggjast svara borginni og þegar það svar liggur fyrir, sennilega í kringum næstu mánaðamót, ætti að skýrast hvort þau afhendi borginni landið eða hyggist halda því áfram innan flugvallargirðingar.

Heimild: Visir.is