Home Fréttir Í fréttum 29.04.2022 Endurbætur á grunnskóla Grindavíkur

29.04.2022 Endurbætur á grunnskóla Grindavíkur

175
0

Consensa fyrir hönd Grindavíkurbæ óskar eftir tilboðum í endurbætur á grunnskóla Grindavíkur sem staðsettur er við Ásabraut 2, 240 Grindavík.

<>

Um er að ræða niðurrif á núverandi klæðningu og uppsetningu á nýrri utanhúsklæðningu, gluggaskiptum að hluta ásamt þéttingu og viðhaldi á eldri gluggum.

Verkið samanstendur af eftirfarandi verkáföngum:

1. Áfangi (Gult svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2022
2. Áfangi (Grænt svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2023
3. Áfangi (Rautt svæði) –  Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2024

Um er að ræða fullnaðarfrágang verksins samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Verkkaupi sér um að útvega allar hurðir og glugga sem fyrirhugað er að endurnýja í ofangreindum verkáföngum.

Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is.

Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum sem finna má HÉR

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en: kl. 12:00 þann 29. apríl 2022.

Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn á útboðsvefnum og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.