Home Fréttir Í fréttum 29.04.2022 Orkubú Vestfjarða ohf. Lagning jarðstrengja og hitaveitulagna – Ísafjörður

29.04.2022 Orkubú Vestfjarða ohf. Lagning jarðstrengja og hitaveitulagna – Ísafjörður

95
0

Orkubú Vestfjarða ohf. óskar eftir tilboðum í lagningu
jarðstrengja og hitaveitulagna.
Mjósund-Æðartangi

<>

Útboðið felur í sér jarðvinnu vegna lagningar á jarðstrengjum,
ídráttarrörum og hitaveiturörum, frágang lagna ofan í
skurðstæði, söndun og frágang.

Hífingar á hitaveiturörum og flutningur á efni frá lager Orkubús
Vestfjarða að verkstað.

Helstu verkþættir eru:
• Söndun, gröftur og brottflutningur efnis
• Lagning jarðvírs
• Flutningur, útdráttur og niðurlagning jarðstrengja
• Flutningur og niðurlögn á hitaveitulögnum
• Lagning ljósleiðararöra og viðvörunarborða
• Yfirfylling
• Yfirborðsfrágangur
• Frágangur í samræmi við fyrirmæli verkgagna og
eftirlitsaðila

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 8.apríl 2022.
Hægt er að panta gögnin á netfangi: utbod@ov.is

Einnig er hægt að skila tilboðum inn rafrænt á ofangreint
netfang eða í lokuðu umslagi til innkaupastjóra Orkubús
Vestfjarða Stakkanesi 1 Ísafirði fyrir klukkan 11:00, 29.apríl
2022 og verða þau þá opnuð í fundarherbergi OV að
viðstöddum þeim bjóðendum sem mættir eru og fulltrúum
Orkubús Vestfjarða