Akraneskaupstaður óskar eftir verðboðum í verkið: „Gangstéttar og breytingar á götum 2022“. Verkið skal framkvæma í samræmi við verðkönnunargögn og önnur gögn sem lögð verða fram fyrir verkið.
Reiknað er með að 75% verks verði unninn 2022, en verki ljúki að fullu fyrir 1.7.2023.
Helstu magntölur:
Steyptar gangstéttar 1.682 fermetrar
Malbik 1.230 fermetrar
Hellulögn 190 fermetrar
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá miðvikudeginum 6. apríl 2022 í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar á vefslóðinni https://akranes.ajoursystem.is/
Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 mánudaginn 25. apríl 2022.
Skipulags- og umhverfissvið
Akraneskaupstaður