F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Laugalækjarskóli – Alútboð – Færanlegar kennslueiningar, útboð nr. 15494
Yfirlit yfir verkið
Reykjavíkurborg býður út í alútboði hönnun, smíði og uppsetningu á sex kennslueiningum ásamt tveimur tengibyggingum.
Einingarnar skulu vera byggðar úr timbri á stálbitum. Hverja húseiningu á að vera hægt að flytja í heilu lagi og setja niður á notkunarstað. Væntanlegur verktaki mun fullhanna kennslueiningarnar og afhenda einingarnar fullbúnar á lóð við skólans að Laugalæk 6, 104 Reykjavík. Nánari lýsingu og útskýringar er að finna í útboðsgögnum á vef Reykjavíkurborgar.
Stofurnar skal smíða á vinnusvæði væntanlegs verktaka og fluttar er smíði er lokið.
Stærðir: Þrjár einingar auk tengibyggingar, heildarstærð alls um 262 m2 .
Verklok: 2. september 2022
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:30, 8. apríl 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 4. maí 2022.