Home Fréttir Í fréttum 25.04.2022 Malbiksyfirlagnir í Reykjavik 2022 – útboð 1 – vestan Reykjanesbrautar

25.04.2022 Malbiksyfirlagnir í Reykjavik 2022 – útboð 1 – vestan Reykjanesbrautar

220
0
Frá malbikun sumarið 2021. VÍSIR/VILHELM

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Malbiksyfirlagnir í Reykjavik 2022 – útboð 1 – vestan Reykjanesbrautar, útboð nr. 15476.

Helstu magntölu: 
Malbiksfletir       92.700 m2
Malbik               9.250 tonn
Fræsing lása      2.700 m2

Verkið felst í malbikun gatna Reykjavíkur vestan Reykjanesbrautar og vinnu tengdri þeirri malbikun. Um er að ræða beinar yfirlagnir á eldri slitlög gatna eða yfirlagnir á áður fræstar götur.
Búast má við að verkefni séu víða á skilgreindu athafnasvæðinu og misstór. Búast má við að verkefni verði 60-70 talsins og á stærðarbilinu 200-9000m2 hvert og að meðalstærð verkefna verði kringum 1500m2.

Lokaskiladagur verksins er 10. september 2022.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00 þann 5. apríl 2022, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 25. apríl 2022.