Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:
Reykholt-Tungurimi og Borgarrimi
Verklok eru 01.12.2022
Verkið felur í sér gerð á nýjum götum Tungurima og Borgarrima í Reykholti, Bláskógabyggð.
Verktaki skal jarðvegsskipta götustæðum samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, reisa ljósastaura, leggja ljósastaurastreng og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annara veitulagna.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 2.200 m³
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 7.500 m³
Fráveitulagnir 815 m
Vatnsveitulagnir 385 m
Ljósastaurar 23 stk
Hitaveitulagnir 602 m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 29. mars 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Sigrúnu hjá Eflu Suðurlandi með því að senda tölvupóst á netfangið sru@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 13. apríl 2022 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.