Home Fréttir Í fréttum 03.05.2022 Vetrarþjónusta 2022-2025, Akrafjallshringur

03.05.2022 Vetrarþjónusta 2022-2025, Akrafjallshringur

152
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á tilteknum leiðum kringum Akrafjall.

<>

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um
framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Heildarlengd vegakafla er 37,4 km.

Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 11.000 km. á ári.

Verklok eru í apríl 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með fimmtudeginum 31, mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. maí 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.