Home Fréttir Í fréttum Innviðaráðuneytið í hart við borgina vegna Skerjafjarðar

Innviðaráðuneytið í hart við borgina vegna Skerjafjarðar

130
0
Flugvallarsamkomulagið handsalað í nóvember 2019. Það gerir ráð fyrir því að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar skuli tryggt á meðan nýtt flugvallarstæði í Hvassahrauni er kannað. SKJÁSKOT/STÖÐ 2

Innviðaráðuneytið hefur vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði tilkynnt borgarstjóra að hverskyns aðgerðir af hálfu borgarinnar sem skerða rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar séu í andstöðu við tveggja ára gamalt flugvallarsamkomulag samgönguráðherra og borgarstjóra vegna Hvassahrauns.

<>

Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að borgin áformi að hefja framkvæmdir við nýtt íbúðahverfi í svonefndum Nýja-Skerjafirði í sumar á landi sem fram til þessa hefur heyrt undir flugvöllinn. Áður en það getur gerst þarf að færa flugvallargirðinguna. En miðað við tóninn sem birtist í bréfi innviðaráðuneytis til Reykjavíkurborgar í síðasta mánuði virðist það ekki ætla að gerast átakalaust.

Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafði áður komið þeim sjónarmiðum á framfæri við bæði ríki og borg að nýjar húsbyggingar í Skerjafirði gætu ógnað öryggi flugvéla með ókyrrð og sviptivindum og fékk Isavia hollensku geimferðastofnunina NLR til að gera úttekt á málinu.

Flugvél Icelandair á leið til Egilsstaða hefur sig til flugs af Reykjavíkurflugvelli í dag. Í baksýn er svæðið í Skerjafirði sem borgin áformar að taka undir íbúðabyggð.
ARNAR HALLDÓRSSON

Í fréttum Stöðvar 2 í byrjun janúar vitnaði Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlands, til niðurstöðu Hollendinganna þegar hún lýsti áhyggjum um að framkvæmdirnar myndu skerða rekstraröryggi flugvallarins. Isavia sendi svo formlegt erindi til innviðaráðuneytis þess efnis í lok janúar.

Ráðuneytið brást við með formlegu bréfi til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í byrjun marsmánaðar þar sem vísað er til minnisblaðs Isavia sem og samkomulags samgönguráðherra og borgarstjóra frá 28. nóvember 2019 um að á meðan nýtt flugvallarstæði væri kannað í Hvassahrauni skyldi rekstraröryggi tryggt á Reykjavíkurflugvelli.

Í bréfinu til borgarstjóra segir ráðuneytið að það sé engum vafa undirorpið að hverskyns framkvæmdir eða aðrar aðgerðir af hálfu Reykjavíkurborgar sem skerða rekstraröryggi flugvallarins séu í andstöðu við framangreint samkomulag.

Séð yfir svæðið í Skerjafirði sem borgin áformar að leggja undir íbúðabyggð.

Óskar ráðuneytið eftir því að Reykjavíkurborg upplýsi með hvaða hætti borgin hyggist tryggja að framkvæmdir á svæðinu hafi hvorki áhrif á flugöryggi né rekstraröryggi vallarins. Þá stöðvi borgin allar slíkar framkvæmdir þar til staðfest sé að öryggi vallarins sé tryggt og var fyrir hönd Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra óskað eftir svari fyrir 25. mars.

Borgin óskaði eftir lengri tíma til að undirbúa svar sitt og var fresturinn þá framlengdur til og með þriðjudagsins 5. apríl, sem er á morgun.

 

Heimild: Visir.is