Vegagerðin býður hér með út lengingu tveggja vinstribeygjuvasa, annars vegar á Reykjanesbraut inn á Bústaðaveg og hins vegar á Sæbraut inn á Skeiðarvog.
Helstu magntölur:
Ónothæfu efni ekið á losunarstað : 1.500 m3
Fyllingar : 1.300 m3
Tvöfalt malbik: 450 m2
Þrefalt malbik: 780 m2
Kantsteinar 340 m
Þökulögn 350 m2
Steinlögn 190 m2
Færsla ljósastaura 4 stk
Verki skal að fullu lokið 29. júlí 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent frá föstudeginum 1. apríl 2022 í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. apríl 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.