Home Fréttir Í fréttum 12.04.2022 Hagaborg – Alútboð – Færanlegar leikskólaeiningar

12.04.2022 Hagaborg – Alútboð – Færanlegar leikskólaeiningar

106
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Hagaborg – Alútboð – Færanlegar leikskólaeiningar, útboð nr. 15466

Yfirlit yfir verkið

Verkið snýst um hönnun, smíði og uppsetningu á tveimur leikskólaeiningum ásamt tengibyggingum.

Einingarnar skulu vera byggðar úr timbri á stálbitum. Hverja húseiningu á að vera hægt að flytja í heilu lagi og setja niður á notkunarstað. Væntanlegur verktaki mun fullhanna leikskólaeiningarnar og afhenda einingarnar fullbúnar á lóð við Hagaborg, að Fornhaga 8, 107 Reykjavík. Nánari lýsingu og útskýringar er að finna í útboðsgögnum á vef Reykjavíkurborgar.

Stofurnar skal smíða á vinnusvæði væntanlegs verktaka og fluttar er smíði er lokið.

Stærðir: Tvær einingar auk tengibyggingar, heildarstærð alls um 237 m2 .

Verklok: 3. október 2022

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, 31. mars 2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef  Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30, 12. apríl 2022.