Home Fréttir Í fréttum 12.04.2022 Sementsfestun og þurrfræsing á Norðursvæði 2022

12.04.2022 Sementsfestun og þurrfræsing á Norðursvæði 2022

167
0
Mynd: FSR

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsingu, festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlags og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2022.

<>

Áætlaðar magntölur:

Festun með sementi                                                    12.694  m2

Þurrfræsing og jöfnun                                                  59.316  m2

Tvöföld klæðing                                                           72.009  m2

Efra burðarlag afrétting                                                 8.387  m3

Verklok eru 1. september 2022.

 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með 28. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  12. apríl 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.