Home Fréttir Í fréttum Nýr miðbær rís á Egilsstöðum

Nýr miðbær rís á Egilsstöðum

98
0
Göngugatan Ormurinn leikur lykilhlutverk í nýja miðbæjarkjarnanum. Aðsend mynd

Samþykkt hefur verið að reisa nýjan miðbæjarkjarna, þar sem m.a. er gert ráð fyrir 160 íbúðum, á Egilsstöðum.

<>

Nýr miðbæjarkjarni mun rísa á Egilsstöðum þar sem m.a. er gert ráð fyrir að 160 íbúðir muni rísa á efri hæðum og verslun og þjónusta verði á neðri hæðum.

Uppbyggingin byggir á nýju deiliskipulagi sem hefur það að markmiði að skapa líflegan miðbæ með opnum torgum og grænum svæðum fjarri bílaumferð. Miðbæjarkjarninn hefur fengið nafnið Straumur en lykilhlutverk í uppbyggingu leikur göngugatan Ormurinn.

Samkvæmt deiliskipulaginu er um 95.588 fermetra svæði að ræða og þarf af eru 51.526 fermetra byggingar.

Núverandi byggingarmagn er um 28.000 fermetrar og magn nýbygginga ofanjarðar er um 23.800 fermetrar. Með nýja deiliskipulaginu verður byggðin þétt til muna og hlutfall íbúða aukið.

Er markmið skipulagsins jafnframt sagt vera að skapa vandaða miðbæjarbyggð, leggja grunn að fögru og vel byggðu umhverfi og skapa aðstöðu fyrir verslun og þjónustu sem laðar að íbúa fjórðungsins og ferðamenn.

Gróðursæl útivistarsvæði og tenging við farþega sem ferðist um hringveginn, í gegnum alþjóðaflugvöllinn á Egilsstöðum og með Norrænu, opni einnig fyrir gríðarstór tækifæri í ferðamennsku.

Lykilþáttur í skipulagstillögunni er sem áður segir göngu- og verslunargata sunnan Fagradalsbrautar sem kallast Ormurinn.

Er nafnið skírskotun til þjóðsögunnar um Lagarfljótsorminn. Inngangar inn í verslanir verða frá göngugötunni en bílastæði verða baka til.

Leitast verður eftir að gera umhverfið við og í kringum göngugötuna aðlaðandi með gróðri og fallegum setsvæðum.

Til að mæta ólíkum þörfum íbúa og gesta er Orminum skipt niður í þrjú minni dvalarsvæði; leiksvæði, torg og samkomusvæði sem ætlað er að virka sem eins konar upphaf, miðja og endir.

Samkvæmt upplýsingum frá Múlaþingi, sveitarfélaginu sem Egilsstaðir tilheyra, er gengið út frá því að hægt verði að hefja uppbyggingu í raunhæfum áföngum og stuðlað verði að því markmiði að hefja uppbyggingu á göngugötunni.

Það sé gert með það í huga að styrkja mannlíf og aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Múlaþing auglýsir nú eftir samstarfsaðilum um uppbyggingu innan fjögurra skilgreindra reita í skipulaginu, sem saman mynda kjarna nýja miðbæjarins.

Nýr miðbær lengi verið í kortunum

Hugmyndin að baki nýja deiliskipulaginu á sér nokkuð langa sögu. Árið 2004 var haldin hugmyndasamkeppni um nýjan miðbæ Egilsstaða þar sem arkitektastofan Arkís vann til fyrstu verðlauna.

Deiliskipulag var samþykkt árið 2006 eftir samráð við hagsmunaaðila á svæðinu og umræðu á íbúaþingi en það komst aldrei til framkvæmda.

Árið 2015 hófst á ný undirbúningur við breytingu á deiliskipulaginu og var ARKÍS falið að vinna skipulagið í samvinnu við bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs.

Ári seinna voru frumdrögin kynnt í stýrihópi og árið 2021 var loks endurskoðað skipulag samþykkt

Heimild: Vb.is