Home Fréttir Í fréttum Verk og vit hefst á morgun

Verk og vit hefst á morgun

136
0
Sýningin Verk og vit fer fram í Laugardalshöllinni dagana 24.-27. mars. Aðsend mynd

Um 100 fyrirtæki og stofnanir kynna vörur og þjónustu á sýningunni Verk og vit sem haldin verður í Laugardalshöllinni.

<>

Unnið hefur verið af kappi að uppsetningu sýningarinnar Verk og vit sem hefst á morgun.

Það er gaman að sjá hvað sýnendur leggja mikinn metnað í sýningarsvæðin og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Elsa Giljan Kristjánsdóttir sýningarstjóri í tilkynningu. Hún segir mikinn áhugi vera á sýningunni en um 100 fyrirtæki og stofnanir munu þar kynna vörur sínar og þjónustu.

Verk og vit sýningin, sem haldin verður í Laugardalshöllinni, hefst á morgun og lýkur á sunnudaginn, 27. mars.

Þetta er í fimmta sinn sem sýningin er haldin og er hún einkum ætluð fagaðilum á sviði byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar.

Meðal sýnenda á Verk og vit eru byggingarverktakar, verkfræðistofur, menntastofnanir, fjármála- og ráðgjafafyrirtæki, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki og sveitarfélög svo eitthvað sé nefnt.

Fyrstu tveir dagar sýningarinnar, fimmtudag og föstudag, eru hugsaðir fyrir fagaðila en seinni tvo dagana, laugardag og sunnudag er almenningi einnig boðið að heimsækja sýninguna.

„Sýningin Verk og vit hefur sannað sig sem mikilvægur vettvangur fyrir aðila í bygginga- og mannvirkjageiranum til að hittast, styrkja viðskiptasambönd og mynda ný, kynna vörur og þjónustu og nýjungar, ásamt því að ræða málin,“ segir í tilkynningunni.

Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru innviðaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.

Heimild: Vb.is