Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið ,,Urriðaholt – Útivistar- og íþróttsvæði – Knattspyrnuvöllur – Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir”
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið ,,Urriðaholt – Útivistar- og íþróttsvæði – Knattspyrnuvöllur – Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir”.
Verkið felst í jarðvinnu og frágangi snjóbræðslu- og stofnlagna fyrir nýjan knattspyrnuvöll í Urriðaholti auk yfirborðsfrágangs undir knattspyrnugras, frágangi kantsvæða með malbiki og girðingu, uppsteypu tæknirýmis og uppsetningu tækjabúnaðar snjóbræðslu og vallarlýsingar í tæknirými.
Helstu magntölur eru:
- Uppgröftur: 2.330 m3
- Aðflutt fylling: 1.225 m3
- Losun klappar: 525 m3
- Mót: 165 m2
- Járnbending: 1.800 kg
- Steypa: 20 m3
- Snjóbræðslulagnir: 12.000 m
- Jarðstrengir: 280 m
- Jöfnunarlag: 3.265 m2
- Malbik: 245 m2
- Stálrimlagirðing: 235 m
- Hlið: 7 stk
Lokaskiladagur verksins er 30. júní 2022.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi hér á vef Garðabæjar frá og með 18. mars 2022.
Tilboð skulu hafa borist VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 31. mars 2022 kl. 10:00, þar sem þau verða opnuð.
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar