Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:
Laugarvatn-Traustatún
Verklok eru 15.11.2022
Verkið felur í sér gerð hluta af nýrri götu, Traustatúni á Laugarvatni, Bláskógabyggð.
Verktaki skal jarðvegsskipta götustæðum samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, reisa ljósastaura, leggja ljósastaurastreng og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annara veitulagna.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 3.900 m³
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 5.600 m³
Fráveitulagnir 786 m
Vatnsveitulagnir 355 m
Ljósastaurar 16 stk
Hitaveitulagnir 439 m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 8. mars 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Sigrúnu hjá Eflu Suðurlandi með því að senda tölvupóst á netfangið sru@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 23. mars og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
F.h. Bláskógabyggðar