F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 1, 2 og 3. EES útboð nr. 15437.
Lauslegt yfirlit yfir verkin:
Bjóðandi skal sjá um þjónustuskoðanir ásamt viðhaldi á hita -, hreinlætis-, snjóbræðslu- og frárennsliskerfum í fasteignum Reykjavíkurborgar samkvæmt útboðsgögnum.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, föstudaginn 4. mars 2022.
Smellið á íslenska fánann neðst á síðunni til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða ,,Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. apríl 2022.