Home Fréttir Í fréttum 07.03.2022 Íþróttahús á Jaðarsbökkum – LENGDUR TILBOÐSFRESTUR

07.03.2022 Íþróttahús á Jaðarsbökkum – LENGDUR TILBOÐSFRESTUR

303
0

Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. óskar eftir tilboðum í uppsteypu og ytri frágang á nýju íþróttahúsi á Jaðarsbökkum.

<>

Verkið felst í uppsteypu mannvirkis, lögnum í jörðu, fyllingu að mannvirki, tengingu við Akraneshöll, ytri frágangi, gluggum og útihurðum, þakvirki og frágangi þaks. Um er að ræða m.a. steypa 2750 m3, útveggjaklæðning 2700 m2, þakfletir 2300 m2.

Skila skal verkinu eigi síðar en 28. apríl 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá miðvikudeginum 5. janúar 2022 í gegnum útboðsvef Mannvits. Verkið er auglýst á EES.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 mánudaginn 7. mars 2022. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs