Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km kafla á Djúpadalsvegi.
Helstu magntölur eru:
- – Bergskering í vegstæði 262.000 m3
- – Fyllingar úr skeringum 208.100 m3
- – Fláafleygar úr skeringum 56.200 m3
- – Grjótvörn 21.000 m3
- – Ræsalögn 966 m
- – Styrktarlag, efnisvinnsla 46.600 m3
- – Styrktarlag, útlögn 43.200 m3
- – Burðarlag, efnisvinnsla 14.700 m3
- – Burðarlag, útlögn 18.300 m3
- – Klæðing 78.800 m2
- – Vegrið 2.840 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 16. febrúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.