Home Fréttir Í fréttum 10.03.2022 Ingunnarskóli – Klæðning útveggja, 2. áfangi

10.03.2022 Ingunnarskóli – Klæðning útveggja, 2. áfangi

511
0
Mynd: Mbl.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Ingunnarskóli – Klæðning útveggja, 2. áfangi útboð nr. 15424

Yfirlit yfir verkið

Framkvæmdin sem um ræðir er 2. hluti af heildarverki í klæðningu útveggja Ingunnarskóla sem stendur við Maríubaug 1 í Grafarholti. Búið er að framkvæma 1. hluta. Verkið nær yfir meginhluta af útveggjum skólans og er um það bil 1.125 m2.

Verkið felst í því að fjarlægja núverandi múrkerfi úr sementsbundinni akrýlmúrklæðningu, ásamt fíbermúrneti og plasteinangrun af meginhluta af steyptum veggjum skólans. Einangra á umrædda veggi með steinull og klæða þá með sléttri álplötuklæðningu sem límd er upp á burðargrind úr áli.

Verlok eru 14. október 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 14. febrúar 2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. mars 2022.