Home Fréttir Í fréttum 22.02.2022 Byggja anddyri, búningsklefa og tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á...

22.02.2022 Byggja anddyri, búningsklefa og tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á Siglufirði

194
0

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í að byggja anddyri, búningsklefa og tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á Siglufirði, samtals 292,3 m2 á tveimur hæðum ásamt rifi á tengigangi skv. útboðsgögnum AVH.

<>

Verktími er frá 1. mars 2022 til 28. apríl 2023.

Helstu magntölur eru:

Gröftur 1.200 m3
Steypumót 1.400 m²
Steypustyrktarstál 10.000 kg
Steinsteypa 190 m3
Kerfisloft 260 m²
Málun 600 m²
Flísalögn samtals 600 m²

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 1. febrúar nk.

Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 22. febrúar og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.