Home Fréttir Í fréttum MS ætlar í miklar framkvæmdir á Selfossi og á Akureyri

MS ætlar í miklar framkvæmdir á Selfossi og á Akureyri

222
0
Farið verður í miklar framkvæmdir hjá MS á Selfossi og MS á Akureyri á árinu og næstu árum. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Mjólkursamsalan (MS) ætlar að ráðast í nokkra milljarða króna framkvæmdir á Akureyri og á Selfossi á nýju ári með byggingu nýrra húsa og endurnýjun véla og tækja á stöðunum. Afkoma Mjólkursamsölunnar var með allra besta móti á nýliðnu ári.

<>

Um 400 starfsmenn vinna hjá Mjólkursamsölunni en afkoma fyrirtækisins hefur sjaldan eða aldrei verið eins góð og á síðasta ári. Í ljósi góðrar fjárhagslegrar stöðu hefur verið ákveðið að fara í miklar framkvæmdir á starfsstöðvum fyrirtækisins á Akureyri og Selfossi.

Pálmi Vilhjálmsson er forstjóri Mjólkursamsölunnar.

„Við erum að fara að hefja framkvæmdir á nýbyggingum og endurnýjun búnaðar, sem hefur staðið til lengi. Á Selfossi er verið að ræða um að endurnýja duftker, sem er komið til ára sinna. Síðan á að byggja við fyrirtækið á Selfossi.

Það á að byggja nýtt þjónusturými, sem er hugsað fyrir stoðbúnað, gufuframleiðslu, kælivélar og ýmislegt annað, vatnsbúskap fyrirtækisins. Þetta er stór og mikil vinnsla og það þarf að hafa þennan búnað öruggan og traustan, það er komin tími á þetta,“ segir Pálmi.

Mynd og texti úr Mjólkurpóstinum, nýjasta fréttabréfi MS.

En hvað á að gera á Akureyri?

„Við ætlum að stækka þar bæði vinnslu og geymslurými, við ætlum að byggja við húsnæðið þar. Það er áætlað að það verði tæpir fimm þúsund fermetrar.

Á Selfossi erum við að tala um tæpa sjö þúsund fermetra. Þannig að allt í allt eru þetta rúmlega tólf þúsund fermetrar á báðum stöðum.“

Pálmi segir að framkvæmdirnar á Akureyri og á Selfossi munu kosta fyrirtækið fimm til sjö milljarða króna þegar allt er talið.

Mynd og texti úr Mjólkurpóstinum, nýjasta fréttabréfi MS.

En nýliðið ár, 2021, er Pálmi sáttur við það hvernig það gekk hjá fyrirtækinu?

„Mjög sáttur við það og stjórnendur og allir eru mjög sáttir við það, sem að þessu koma, líka í þessu erfiða ástandi, sem hefur verið. Við höfum sloppið blessunarlega vel og erum þar af leiðandi mjög sátt við niðurstöðuna,“segir Pálmi.

Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri MS.
Mynd: MS

Heimild: Mbl.is