Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ

Opnun útboðs: Þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ

149
0

Úr fundargerð Bæjarráðs Garðabæjar þann 21.12.2021

<>

Lögð fram að nýju yfirfarin tilboð sem bárust í þjónustu og viðhald gatnalýsingar.

Bergraf               kr. 277.308.424
TG Raf                kr. 215.344.734
Orkuvirki            kr. 556.987.375
Hlíðarhagi           kr. 256.149.740
Rafall                  kr. 213.730.147
Raflína                kr. 197.037.150
Tengill                 kr. 224.631.955

Kostnaðaráætlun  kr. 328.809.064

Á fundinum var upplýst að komið hefur í ljós að lægstbjóðandi uppfyllir ekki skilmála útboðsins og verður því ekki samið við hann um verkefnið.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Rafals ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins.

Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.