Home Fréttir Í fréttum Undirritun samnings um kaup Reykjavíkurborgar á Hafnarhúsinu

Undirritun samnings um kaup Reykjavíkurborgar á Hafnarhúsinu

130
0
Ljósmynd: Magnús Þór Ásmundsson hafnarstjóri Faxaflóahafna, Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona (fulltrúi Unu Dóru Copley, dóttur Nínu Tryggvadóttur listakonu) og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur

Þann 17. maí 2018 var viljayfirlýsing samþykkt af borgarráði um kaup Reykjavíkurborgar á Hafnarhúsi Faxaflóahafna, Tryggvagötu 17.

<>

Um er að ræða sölu á 61 % eignarhlut Faxaflóahafna. Í kjölfarið fór fram mat óháðra aðila á verðmæti hússins og á grundvelli þess var samið um kaupverðið 2.184.800.000 kr. sem er jafnt fasteignamati umrædds hluta hússins.

Hafnarhúsið var teiknað af Sigurði Guðmundssyni, arkitekt, í samvinnu við Þórarin Kristjánsson þáverandi hafnarstjóra á árinum 1933-1939.

Húsið sinnti því mikilvæga hlutverki að vera skrifstofu- og vörugeymsluhús Reykjavíkurhafnar og var ein stærsta bygging landsins.

Stefnt er að því í framtíðinni að Hafnarhúsið verði miðstöð myndlistar í höfuðborginni. Við hliðina á Hafnarhúsinu er svo fyrirhugað að starfsemi Listaháskóla Íslands verði komið fyrir í Tollhúsinu.

Í dag, mánudaginn 13. desember, undirrituðu Magnús Þór Ásmundsson hafnarstjóri Faxaflóahafna, Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona (fulltrúi Unu Dóru Copley, dóttur Nínu Tryggvadóttur listakonu) og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, samning um kaup borgarinnar á húsnæði Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu.

Með samningnum mun Reykjavíkurborg eignast Hafnarhúsið í heild sinni en hluti hússins mun hýsa nýtt safn Nínu Tryggvadóttur. Undirritunin fór fram í Listasafni Reykjavíkur, klukkan 13.15.

Faxaflóahafnir munu byggja nýtt húsnæði undir starfsemi sína í Reykjavík.

Gert er ráð fyrir að það verkefni geti tekið þrjú ár en fram að því að ný aðstaða verði tekin í notkun mun fyrirtækið leigja núverandi aðstöðu í Hafnarhúsinu skv. samkomulagi við Reykjavíkurborg.

„Það verða tímamót þegar Faxaflóahafnir kveðja þetta merkilega hús en á sama tíma tækifæri til að færa alla starfsemi fyrirtækisins í Reykjavík undir eitt þak.

Staðarval er ekki endanlega ákveðið en í nýrri aðstöðu verður tækifæri til að bæta vinnuaðstæður starfsfólks og til að færa aðstöðu dráttarbáta nær Sundahöfn og minnka með því kolefnisfótspor fyrirtækisins.“, sagði Magnús Þór við undirskrift samningsins í dag.

Heimild: Faxaflóahafnir.is