Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Fyrsta skóflustungan tekin í dag að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við...

Fyrsta skóflustungan tekin í dag að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Kirkjubraut á Seltjarnarnesi

213
0
Fyrstu skóflustunguna tóku þau Ásgerður Halldórssdóttir bæjarstjóri, Bjarni Torfi Álfþórsson formaður fjölskyldunefndar og Þóra Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags.

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Kirkjubraut 20 á Seltjarnarnesi var tekin í dag, miðvikudaginn 8. desember. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri, Bjarni Torfi Álfþórsson formaður fjölskyldunefndar og Þóra Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags tóku fyrstu skóflustunguna.

<>

Um er að ræða búsetukjarna með sex íbúðum fyrir fatlað fólk ásamt starfsmannarými og er heildarstærð húsnæðisins um 553 m².

Húsið verður umhverfisvænt og rekstrarlega hagkvæmt auk þess sem markmiðið er að raska sem minnstu í náttúrunni. Húsið og lóðin munu þannig falla vel inn í og njóta sín vel í náttúrlegu umhverfi Valhúsahæðar.

Seltjarnarnesbær og Ás styrktarfélag hafa gert með sér viljayfirlýsingu um samstarf um rekstur búsetukjarnans. Seltjarnarnesbær mun eiga húsið og Ás styrktarfélag taka að sér rekstur hússins og þjónustu við íbúa.

Húsnæðið er hannað af þeim Önnu Margréti Hauksdóttur arkitekt og Pétri Jónssyni hjá AVH samkvæmt hugmyndafræðilegum áherslum Áss styrktarfélags.

AVH sá ennfremur um burðarþol og lagnir, Lúmex sá um ljósahönnun, Myrra hönnunarstofa um hljóðráðgjöf og Brunahönnun slf sá um brunahönnunina.

Undirritun samnings við Húsasmíði ehf. sem mun byggja búsetukjarnann.

Samið var við Húsasmíði ehf, lægstbjóðandi verktaka í útboði og er heildarkostnaður við byggingu búsetukjarnans áætlaður um 293,0 mkr.

Á myndinni eru: Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Villi Stefánsson eigandi Húsasmíði ehf. Að auki fv. Pétur Jónsson og Anna Margrét Hauksdóttir hjá AVH, Þóra Þórarinsdóttir Ás styrktarfélag, Pétur Vilberg Guðnason og Jóhann Kristinsson Strendingi, Kristinn Elfar Ásgeirsson Húsasmíði, Brynjar Þór Jónasson, Jóhanna Ásgerðardóttir og Baldur Pálsson Seltjarnarnesbæ.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdatími verði um 12 mánuðir og að fyrstu íbúar flytji inn í febrúar 2023. Byggingastjóri og eftirlitsaðili með verkefninu fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar er Jóhann Kristinsson hjá Strendingi ehf.

Heimild: Seltjarnarnes.is