Það eru ánægðir íbúðaeigendur, sem taka á móti lyklum sínum í dag í 35 nýjum íbúðum á Selfossi en blokkin, sem fólkið er að flytja í er hæsta húsnæði á Suðurlandi upp á sex hæðir.
Allar íbúðirnar í blokkinni seldust án auglýsinga. Byggingarverktakinn er byrjaður að byggja aðra blokk við hlið þeirra nýju.
Það voru starfsmenn Pálmatrés, sem byggðu blokkina á 14 mánuðum. Öllum íbúðunum 35 er skilað fullkláruðum, þannig að það er bara að flytja inn.
Ekki eru bílskúrar eða bílakjallari, sem fylgja íbúðunum. Pálmi Pálsson, sem er frá bænum Hjálmsstöðum í Laugardal rétt við Laugarvatn er eigandi Pálmatrés.
„Fólk kemur hér í hollum eftir því á hvaða hæðum það er og fær bara lyklana afhenta og gengur í sínar íbúðir. Svo um helgina eða í næstu viku förum við yfir málin með þeim.
Það tók okkur 14 mánuði að byggja blokkina því við gátum ekki farið hraðar út af efnisþurrð og fleiri atriða, þannig að þetta hefur bara gengið mjög vel, tíðin verið góð og allir kátir,“ segir Pálmi.
Pálmi segir mikla vöntun á húsnæði á Selfossi og því hafi íbúðirnar í nýju blokkinni selst eins og heitar lummur. Íbúðirnar eru aðeins mismunandi að stærð eða meðal verðið á þeim fullbúnum er um 35 milljónir króna.
Pálmi og hans starfsmenn eru byrjaðir á nýrri blokk.
„Já, ,við erum búnir að steypa upp annað 35 íbúða hús við hliðina hér og setjum það í sölu með vorinu, þannig að það er áætlað að afhenda það einhvern tíma næsta haust“. Pálmi segir að húsnæðisskortur á Selfossi tengist ástandinu í Reykjavík, fólk er að flytja þaðan og austur fyrir fjall.
“Svo er náttúrulega mikil fjölgun á fólki hérna og það hefur bara verið skortur á húsnæði hér á svæðinu. Það er fullt af fólki hér úr nærsveitunum, sem kaupir hér undir börnin sín í námi og þess háttar, þannig að það er ýmislegt sem spilar saman þar,“ bætir Pálmi við.
Og þessi nýja blokk, þetta er hæsta íbúðarhús á Suðurlandi, eða hvað?
„Mér skilst það já, það hlýtur einhver að fara í hærra á næstunni, það getur ekki annað verið. Blokkinn á að þola alla jarðskjálfta, enda er það útreiknað af sérfræðingum,“ segir Pálmi og hlær, stoltur og sáttur við nýju blokkina.
Heimild: Visir.is