Sundabakki, dýpkun og landfyllingar 2022
Hafnir Ísafjarðar og Súðavíkurhöfn óska eftir tilboðum í verkið „Sundabakki, dredging and land reclamation 2022“.
Áætlað dýpkunarmagn er 530.000 m3. Efninu skal koma fyrir í landfyllingum á Ísafirði og Súðavík.
Verkinu skal lokið eigi síðan en 31. Október 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 15. nóvember 2021og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. desember 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.