Home Fréttir Í fréttum Askur er nýr styrktarsjóður fyrir rannsóknir í mannvirkjagerð

Askur er nýr styrktarsjóður fyrir rannsóknir í mannvirkjagerð

117
0

Stofnaður hefur verið nýr sjóður til að efla rannsóknir og nýsköpun í mannvirkjagerð á Íslandi.

<>

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og hægt er að sækja um styrki fyrir rannsóknar- eða þróunarverkefni á sviði mannvirkjamála.

Sjóðurinn, sem hefur fengið nafnið Askur, er fjármagnaður sameiginlega af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu  og félagsmálaráðuneytinu en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) annast stjórn og daglega umsýslu sjóðsins.

Hlutverk Asks er að veita styrki til mannvirkja­rannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskor­unum á sviði mannvirkjagerðar.

Við úthlutun sjóðsins fyrir árið 2021 er lögð áhersla á: raka- og mygluskemmdir, byggingarefni, orkunýtingu og losun gróðurhúsalofttegunda, tækninýjungar í mannvirkjagerð sem auka framleiðni og draga úr umhverfisáhrifum og gæði og ólík form íbúðarhúsnæðis .

Með starfsemi sjóðsins fær HMS mikilvæga yfirsýn yfir rannsóknarumhverfi iðnaðarins hverju sinni. Á sama tíma er hægt að beina rannsóknum að þeim þáttum sem nauðsynlegt er að þróa betur eins og t.d. raka- og mygluskemmdum eða vistvænni mannvirkjagerð.

Í framhaldinu stefnir HMS að því að mynda vísindaráð í samstarfi við háskólasamfélagið og iðnaðinn, sem mun marka stefnu fyrir mannvirkjarannsóknir til næstu ára

Með starfsemi Asks fær HMS gullið tækifæri til að byggja miðlægan grunn þaðan sem þeirri þekkingu sem ávinnst með verkefnunum er miðlað.

Það verður gert í samhengi við útgáfu Rb-blaða, sem nú er í höndum HMS, ásamt öðru fræðsluefni stofnunarinnar á sviði mannvirkjagerðar. Með þessu móti náum við að stuðla að betri, öruggari og vistvænum byggingum til framtíðar.

Skila þarf inn rafrænum umsóknum í gegnum http://www.hms.is/askur en á þeirri vefsíðu má jafnframt finna nánari upplýsingar um úthlutunina og starfsemi Asks. Umsóknarfrestur er til og með 9. desember 2021.

Heimild: HMS.is