Home Fréttir Í fréttum Samið um kaup og kjör erlenda starfsmanna sem starfa á Þeistareykjum

Samið um kaup og kjör erlenda starfsmanna sem starfa á Þeistareykjum

105
0
Starfsmenn G&M að störfum á Þeistareykjum.

Stéttarfélögin Framsýn og Þingiðn hafa gengið frá samkomulagi við pólska verktakafyrirtækið G&M Sp. Zo.o um kaup og kjör starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu á Þeistareykjum.

<>

Á heimasíðu stéttarfélaganna segir að samningaviðræður hafi staðið yfir síðustu vikurnar sem enduðu með undirskrift samnings milli aðila í gær.

Fyrirtækið G&M er undirverktaki hjá LNS Saga sem sér um uppbygginguna á stöðvarhúsinu á Þeistareykjum fyrir Landsvirkjun. Uppundir 80 starfsmenn hafa verið á vegum G&M á svæðinu undanfarna mánuði.

Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, segist ánægður með samninginn og þar með hafi ákveðinni óvissu verið eytt um kjör starfsmanna sem starfa hér eftir svokölluðum Stórframkvæmdasamningi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins.

Kynningarfundur um samninginn verður á Þeistareykjum í næstu viku.

Heimild: 641.is