Home Fréttir Í fréttum Fjöldi nýrra gatna og torga í höfuð­borginni komnar með heiti

Fjöldi nýrra gatna og torga í höfuð­borginni komnar með heiti

126
0
Blámúli, Barðmúli og Lautarmúli eru meðal nýrra götuheita í Reykjavík. Mikil uppbygging er framundan á Orkureit á mótum Suðurlandsbrautar, Grensásvegar og Ármúla. REITIR

Stálhöfði, Andvaranes, Otursnes, Blámúli, Barðmúli og Lautarmúli eru meðal nýrra götuheita í Reykjavík. Götunar sem um ræðir verða í Múlunum, Skerjafirði, og á Ártúnshöfða.

<>

Í tilkynningu frá borginni segir að skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar hafi óskað eftir því við nafnanefnd að fá tillögur að nöfnum gatna í nýrri byggð í Skerjafirði, Ártúnshöfða og Orkureit.

Skipulags- og samgönguráð samþykkti tillögur nefndarinnar á fundi sínum í morgun og bíður nú samþykktar borgarráðs.

„Í Skerjafirði eru ný gatnaheiti Andvaranes, Otursnes og Reginsnes auk þess sem nýtt torg fær nafnið Igðutorg.

Innblásturinn að nýju götunöfnunum er fenginn frá Sigurði Fáfnisbana og sagnaheimi í kringum hann en Otur og Reginn eru bræður Fáfnis en fyrir eru í Skerjafirði til dæmis Fáfnisnes og Gnitanes.

„Í Fáfnismálum segir frá för Regins og Sigurðar upp á Gnitaheiði, þar sem Sigurður notar sverðið Gram til að vinna á orminum Fáfni sem liggur á vænum haug af gulli.

Síðan steikir garpurinn hjarta Fáfnis yfir eldi. Þegar hann hyggst kanna hvort fullsteikt sé fær hann dropa af hjartablóði ormsins á tunguna, „þá kunni hann fuglsrödd og skildi, hvað igðurnar sögðu“ segir í Snorra Eddu.

Og eftir að Sigurður hefur hlustað á snjallan ljóðasöng spörfuglanna um stund drepur hann Regin, bindur gullið í klyfjar sem hann leggur á bak hestinum Grana og ríður á brott,“ segir í Lesbók Morgunblaðsins 29. janúar 2005.

Atvinnusaga á Ártúnshöfða
Á Ártúnshöfða er innblásturinn öllu tengdari raunheimum og er úr atvinnusögu hverfisins en þar bætast við göturnar Stálhöfði og Steinhöfði og nýr garður fær nafnið Iðjugarður.

Múlar nefndir eftir landslagi
Á Orkureit, sem er milli Suðurlandsbrautar, Grensásvegar og Ármúla, koma göturnar Dalsmúli, Blámúli, Barðmúli og Lautarmúli. Til viðbótar fær nýtt torg nafnið Múlatorg.

Þarna leitar nafnanefnd í þá hefð Múlar séu nefndir eftir landslagi eins og Ármúli og Síðumúli. Þess má geta að blá þýðir þarna mýri.

Nafnanefnd var beðin um að leggja til nafn á hliðarveg við Vesturlandsveg, milli Brimness og Kjalarness og er einfaldlega lagt til að vegurinn verði nefndur Hofsvíkurvegur.

Einnig var hún beðin um að finna nafn á veg sem liggur frá Þingvallavegi og upp í skíðaskála og loftskeytamastur á Skálafelli. Þar er einfaldleikinn líka í fyrirrúmi og fær vegurinn nafnið Skálafellsvegur.

Nafnanefnd skipa Ármann Jakobsson, Guðrún Kvaran, Ásrún Kristjánsdóttir og Nikulás Úlfar Másson, sem er formaður nefndarinnar. Til viðbótar situr Hrafnhildur Sverrisdóttir verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa fundi nefndarinnar,“ segir í tilkynningunni.

Heimild: Visir.is