Home Fréttir Í fréttum Vinnuvélar í umferð eru nú skráningarskyldar

Vinnuvélar í umferð eru nú skráningarskyldar

173
0
Mynd: Samgöngustofa.is

Eigendur vinnuvéla sem ætlaðar eru til aksturs í umferð, það er að segja á opinberum vegum, þurfa nú að skrá þær í ökutækjaskrá og setja á þær skráningarmerki til auðkenningar.

<>

Skráning þessara vinnuvéla hefst í dag, 1. nóvember, og þarf að hafa farið fram fyrir 31. desember næstkomandi. Eftir þann tíma má eiga von á sektum.

Ökutækjaskrá er í umsjón Samgöngustofu en til hagræðingar fyrir eigendur vinnuvéla mun Vinnueftirlitið annast allar skráningar og eigendaskipti á þeim.

Sótt er um skráningu vinnuvéla til aksturs í umferð á mínum síðum á vef Vinnueftirlitsins.

Reglur um skráningu vinnuvéla koma fram í umferðarlögum sem tóku gildi 1. janúar 2020 og reglugerð um skráningu ökutækja.

Nánari upplýsingar er að finna undir götuskráning á vef Vinnueftirlitsins.

Heimild: Samgöngustofa.is