Home Fréttir Í fréttum 101 lóðaumsókn á Hellu

101 lóðaumsókn á Hellu

61
0
Framkvæmdir hafnar í Kjarröldu. Mynd: Ry.is

Á fundi byggðarráðs Rangárþings ytra í síðustu viku var úthlutað 17 lóðum, 15 íbúðalóðum fyrir 33 íbúðaeiningar og 2 atvinnulóðum á Hellu.

<>

Að þessu sinni þurfti í mörgum tilfellum að draga um lóðir þar sem allt að 14 umsóknir voru um sumar lóðirnar.

Dregið um lóðir í Byggðaráði. Mynd: Ry.is

Lóðirnar sem úthlutað var í síðustu viku standa við Kjarröldu, Bogatún, Guðrúnartún, Sporðöldu, Sandöldu, Langöldu, Dynskála og Faxaflatir.

Það hefur verið kraftur í húsbyggingum á Hellu undanfarin misseri og ekki dregur úr þvi á næstunni miðað við þessi tíðindi.

Heimild: Ry.is