Home Fréttir Í fréttum Ráðast í hönnun og út­boð á hafnar­mann­virkjum vegna Baldurs

Ráðast í hönnun og út­boð á hafnar­mann­virkjum vegna Baldurs

72
0
Núverandi samningur við Sæferðir um ferjusiglingar gildir til 31. maí 2022 með möguleika á framlengingu til 31. maí 2023. VEGAGERÐIN

Vegagerðin telur hagkvæmast að uppfylla núverandi samning um ferjusiglingar á Breiðafirði og nota gildistíma hans, til maímánaðar 2022 eða 2023, til hönnunar og útboðs á hafnarmannvirkjum á Brjánslæk og í Stykkishólmi.

<>

Ný hafnarmannvirki séu forsenda fyrir áframhaldandi ferjurekstri á Breiðafirði.

Þetta er niðurstaða mats Vegagerðarinnar varðandi ferjusiglingar á Breiðafirði næstu misserin og sagt er frá á vef stofnunarinnar.

Þar segir að þrátt fyrir að nýverandi ferja, Baldur, uppfylli ekki nútíma kröfur um aðgengi og útlit þá uppfylli skipið þær öryggiskröfur sem séu í gildi. Skipið sé í notkun og flutningsgeta viðunandi.

„Núverandi samningur við Sæferðir um ferjusiglingar gildir til 31. maí 2022 með möguleika á framlengingu til 31. maí 2023.

Ítarleg leit hefur farið fram að skipi sem gæti leyst núverandi skip af á meðan verið væri að huga að framtíðarfyrirkomulagi ferjusiglinga á Breiðafirði.

Ekkert skip fannst sem uppfyllti þær kröfur sem settar voru. Að auki þá verður ekki hjá því litið að ferjumannvirki, bæði á Brjánslæk og í Stykkishólmi eru „sérsniðin“ að gamla Baldri sem var óvenju mjótt skip og þau síðan aðlöguð að núverandi Baldri.

Ljóst er að huga þarf að endurnýjun þessara mannvirkja svo þau geti annað þeirri flutningsgetu sem fyrirsjáanleg er miðað við aukna framleiðslu afurða á Vestfjörðum,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Heimild: Visir.is