Home Fréttir Í fréttum Leikskólapláss fyrir 340 börn í fjórum nýjum leikskólum

Leikskólapláss fyrir 340 börn í fjórum nýjum leikskólum

19
0
Svona á Ævintýraborgin við Eggertsgötu og útisvæðið að líta út. REYKJAVÍKURBORG

 

<>

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í dag að setja á fót nýja leikskóla við Eggertsgötu, Nauthólsveg, Barónsstíg og í Vogabyggð. Leikskólarnir verða svokallaðar Ævintýraborgir í færanlegu húsnæði.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Ævintýraborgirnar svokölluðu hæfi vel nútíma leikskólastarfi og kröfum um góðan aðbúnað barna og starfsfólks.

Borgarráð hefur áður samþykkt að setja á fót færanleg húsnæði á fyrrnefndum fjórum stöðum í borginni fyrir Ævintýraborgir og kemur samþykkt skóla- og frístundaráðs í framhaldi af þeim ákvörðunum borgarráðs.

Þessir fjórir leikskólar munu geta tekið á móti um 340 börnum og er stefnt að því að þeir opni á tímabilinu nóvember 2021 til mars 2022.

Markmiðið að börnin komist inn eftir tólf mánaða orlof

Opnun nýrra leikskóla er liður í aðgerðaráætluninni Brúum bilið sem hefur að markmiði að fjölga leikskólarýmum í Reykjavík svo bjóða megi börnum leikskólapláss þegar 12 mánaða fæðingarorlofi sleppir.

Aðgerðaáætlunin var samþykkt í borgarstjórn fyrir tæpum tveimur árum og felur í sér byggingu nýrra leikskóla, viðbyggingar við starfandi leikskóla og viðbótardeildir í færanlegu húsnæði.

Þá er fjölgað rýmum í sjálfstætt reknum leikskólum.

Fleiri leikskólapláss en áætlað í upphafi

Alls var gert ráð fyrir því í aðgerðaráætluninni „Brúum bilið“ að leikskólarýmum yrði fjölgað um 700-750 fyrir lok árs 2023.

Í tilkynningu frá borginni segir að nú liggi fyrir að leikskólarýmum muni fjölga mun meira, meðal annars til að mæta fólksfjölgun í borginni og vaxandi þörf ungbarnafjölskyldna fyrir leikskóla frá lokum fæðingarorlofs.

Áætlaður opnunartími nýrra ævintýraborga

Stefnt er að opnun í nóvember 2021 í ævintýraborg við Eggertsgötu með rými fyrir a.m.k. 80 börn á aldrinum 12 mánaða til 6 ára.

Stefnt er að opnun í desember 2021 í ævintýraborg við Nauthólsveg með rými fyrir um 100 börn á aldrinum 12 mánaða til 6 ára.

Stefnt er að opnun í febrúar 2022 í ævintýraborg á lóð Vörðuskóla við Barónsstíg 34 með rými fyrir um 60 börn á aldrinum 12 mánaða til 3 ára.

Stefnt er að opnun í mars 2022 í ævintýraborgar við Vogabyggð 5 með rými fyrir um 100 börn á aldrinum 12 mánaða til 6 ára.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir foreldra fyrir börn sín inn í alla þessa nýju leikskóla.

Heimild: Visir.is