Home Fréttir Í fréttum Byggingarkranar sem gætu risið í tengslum við framkvæmdir á Hlíðarendasvæðinu á næstunni

Byggingarkranar sem gætu risið í tengslum við framkvæmdir á Hlíðarendasvæðinu á næstunni

99
0

ÞG verktakar hafa sent inn beiðni til Samgöngstofu um að fá að reisa fyrstu byggingarkranana á Hlíðarendasvæðinu svokallaða þar sem um sexhundruð íbúðir og stærsta hótel landsins munu rísa á næstu misserum.

<>

Fáist beiðin samþykkt verður ekki hægt að nota norðaustur/suðvestur flugbrautina, sem oft hefur verið kölluð „Neyðarbrautin,“ meðan á framkvæmdum stendur.

Í samtali við Vísi segir Þorvaldur Gissurarson, eigandi ÞG verktaka, að fyrirtækinu hafi ekki borist endanlegt svar frá Samgöngustofu en býst við því á allra næstu dögum enda er gert ráð fyrir fyrstu skóflustungunni á svæðinu á morgun eða þriðjudag.

Þorvaldur segir að lengi hafi verið ljóst að leggja verði niður flug um brautina meðan á þessum framkvæmdum stendur. „Það lá alltaf fyrir að þetta flug yrði lagt niður svo að byggð gæti risið á svæðinu,“ segir Þorvaldur.

„Við skiptum okkur svo sem ekkert af því enda gera ÞG verktakar ekki neitt annað en að koma inn á lóð sem er deiliskipulögð af Reykjavíkurborg og með útgefið  byggingarleyfi sem búið var að gefa út áður en við fórum af stað. Fyrir okkur er þetta nákvæmlega sama fyrirkomulag og að byggja í Grafarholti eða í Bryggjuhverfinu,“ segir Þorvaldur og bætir við að einhvers konar afgreiðsla milli ríkis og borgar sé þeim óviðkomandi.

Heimild: Visir.is