Home Fréttir Í fréttum Hunsuðu lög um ríkisábyrgðir vegna Vaðlaheiðarganga

Hunsuðu lög um ríkisábyrgðir vegna Vaðlaheiðarganga

153
0

Með því að víkja frá skilyrðum um ríkisábyrgðir vegna lána til félagsins Vaðlaheiðarganga, sem sér um gerð samnefndra jarðganga, var sú grunnregla laga um ríkisábyrgð, sem á að fyrirbyggja að ríkissjóður taki of mikla áhættu, gerð óvirk. Þetta er mat Ríkisendurskoðunar en stofnunin birti í dag nýja skýrslu þar sem fjallað er um ríkisábyrgðir og endurlán ríkissjóðs.

<>

Í skýrslunni segir meðal annars að ætla mætti að ef fulltrúum Ríkisábyrgðasjóðs hefði verið falið að meta tryggingarnar sem félagið Vaðlaheiðargöng kom með fyrir ríkisábyrgðinni, líkt og lög um ríkisábyrgðir gera ráð fyrir, hefði ekki orðið af lánveitingu til fyrirtækisins, enda hafi fulltrúar sjóðsins lýst þeirri afstöðu, þegar eftir því var leitað, að þeir teldu tryggingarnar ófullnægjandi.

Að mati sjóðsins var afar ólíklegt að hægt yrði að „endurfjármagna lánið án ríkisábyrgðar með þeim lánskjörum að verkefnið stæði undir sér.“ Því væru litlar líkur á því að ríkissjóður fengi lánið endurgreitt heldur myndi hann áfram vera bundinn „með það fjármagn sem veita ætti til framkvæmdarinnar.“

Samkvæmt lögum sem heimiluðu gerð Vaðlaheiðarganga, sem samþykkt voru 2012, og þær ríkisábyrgðir sem samþykktar voru vegna lána til félagsins sem stendur að gerð jarðganganna, áttu lög um ríkisábyrgðir að gilda um lánið.

Þó var undanskilið ákvæði í lögunum sem segir til að um félagið sem ríkið gengur í ábyrgð fyrir skuli leggja fram að minnsta kosti 20 prósent af heildarfjárþörf verkefnisins. Auk þess var undanskilið ákvæði sem segir til um að ábyrgð ríkissjóðs skuli ekki nema hærra hlutfalli en 75 prósent af lánsfjárþörf verkefnisins.

Ríkisendurskoðun telur að tilgangur þess að víkja frá þessum skilyrðum hafi verið að heimila lán sem næmi 100 prósent af lánsfjárþörf vegna Vaðlaheiðarganga. Ríkiendurskoðun varar við slíku verklagi og hvetur fjármála-og efnahagsráðuneytið til að hafa tilgang og markmið laga um ríkisábyrgðir „ávallt að leiðarljósi þegar það leggur fram tillögur um ríkisábyrgðir eða endurlán.“

Sjá má skýrslu Ríkisendurskoðunar í heild sinni hér.

Heimild: Vísir.is