Home Fréttir Í fréttum Kafli í Sundagörðum malbikaður

Kafli í Sundagörðum malbikaður

58
0
Vegakaflinn sem um ræðir. Kort/Vegagerðin

Á morg­un, miðviku­dag, er stefnt á að mal­bika Sundag­arða, ak­rein til suðurs, frá Sæ­braut og niður að inn­keyrslu að KFC ef veður leyf­ir.

<>

Mal­bika þarf kafl­ann í Sunda­görðum í tvennu lagi til að koma í veg fyr­ir lok­un á Sæ­braut.

Áætlað er að fram­kvæmd­irn­ar standi yfir frá klukk­an 13 til 16.

Veg­far­end­ur eru beðnir um að virða merk­ing­ar og hraðatak­mark­an­ir og sýna aðgát við vinnusvæðin, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá Vega­gerðinni.

Vegakafl­inn sem um ræðir á Kringlu­mýr­ar­braut. Kort/​Vega­gerðin

Mal­bika á Kringlu­mýr­ar­braut
Annað kvöld er síðan stefnt á að mal­bika hægri ak­rein á Kringlu­mýr­ar­braut frá Lista­braut og 800 metra til suðurs ef veður leyf­ir.

Áætlað er að fram­kvæmd­irn­ar standi yfir frá klukk­an 18:30 til 24.

Heimild: Mbl.is