Verklok eru áætluð í október.
Við mislæg vegamót Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar standa nú yfir framkvæmdir sem felast í breytingu á aksturs-, hjóla- og gönguleiðum.
Tilgangur framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi og afkastagetu vegamótanna.
Breyting verður á umferðarljósum og akstursferlum yfir brúna, ásamt lengingu hægri beygjureinar þegar ekið er norður Kringlumýrarbraut inn á Bústaðaveg til austurs.
Við rampa norðan Bústaðavegar og vestan Kringlumýrarbrautar verður sameiginlegum göngu- og hjólastíg breytt í aðskilið stígakerfi með göngustíg og tvístefnu hjólastíg í svipaðri mynd og aðliggjandi stígakerfi við Kringlumýrarbraut og Bústaðaveg.
Einnig verður gangstétt eftir brúnni að norðanverðu breikkuð til að auka pláss fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Lýsing við göngu- og hjólaleiðir verður einnig bætt, sem mun auka öryggi hjólandi og gangandi vegfarenda.
Samkvæmt verkáætlun verður beygjuakrein inn á Bústaðaveg þegar ekið er til norðurs laus við allar þrengingar í fyrstu viku september.
Vinnu við brú verður lokið í annarri viku september og umferðarflæði þá komið í eðlilegt horf. Unnið verður við ýmsan yfirborðsfrágang og hreinsun framkvæmdasvæðisins til verkloka sem eru samkvæmt verksamningi 7. október 2021, sú vinna á ekki að hafa áhrif á umferð né umferðaröryggi.
Heimild: Vegagerðin.is