Home Fréttir Í fréttum 27.09.2021 Varanleg salerni við hringveginn

27.09.2021 Varanleg salerni við hringveginn

140
0
Mynd: Guðrún Hauksdóttir - RÚV

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stendur að fjárfestingarátaki um uppbyggingu varanlegra salerna á áningarstöðum við hringveginn.

<>

Fjárfestingarátakið er liður í að sporna við niðursveiflu í efnahagslífinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Um er að ræða tímabundið fjárfestingarátak.

Markmið fjárfestingarátaksins er að byggja upp varanleg salerni á áningarstöðum við hringveginn.

Leitast verði við að dreifing salernanna um einstaka landshluta verði sem jöfnust og hugað verði að aðgengi fyrir alla.

Verkefni þar sem um er að ræða 40-50 km fjarlægð frá næsta þéttbýli njóta forgangs, einkum á sunnanverðum Vestfjörðum og Norð-Austurlandi.

Auglýst: 30.08.2021 kl. 08:16
Skilafrestur 27.09.2021 kl. 13:00
Opnun tilboða: 27.09.2021 kl. 13:15

Þeir sem geta sótt um að taka þátt eru einstaklingar og lögaðilar.

Fjárfestingarátakið nemur 100 m.kr. og verður þeim úthlutað í samræmi við fjölda umsókna og upphæð hverrar umsóknar.