Ríkiskaup fyrir hönd Nýs Landspítala ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á hönnun nýs húsnæðis fyrir Grensásdeild, endurhæfingardeild Landspítala við Álmgerði í Reykjavík.
Nýbygging á að rísa vestanvert við núverandi aðalbyggingu endurhæfingardeildarinnar þar sem heimild er fyrir 3.800 m2 byggingu.
Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum og er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Að loknu forvali mun verkkaupi velja fyrirtæki úr hópi hæfra umsækjenda til þátttöku í lokuðu útboði.
Útboðið hefur þegar verið auglýst í Stjórnartíðindum ESB (Tenders Electronic Daily – TED)
Nánari upplýsingar eru í útboðsgögnum sem eru aðgengileg hér neðar í hlekk á Tendsign rafræna útboðskerfið.