Home Fréttir Í fréttum 13.08.2021 Akraneskaupstaður. Grundaskóli – Kennslustofur 2021

13.08.2021 Akraneskaupstaður. Grundaskóli – Kennslustofur 2021

104
0
Mynd: Skagafrettir.is

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í smíði og uppsetningu á 3 kennslustofum við Grundaskóla á Akranesi.

<>

Um er að ræða smíði utan verkstaðar á 4 húsum úr timbri (3 kennslustofur og anddyriseining), flutningi og uppsetningu á sökkulbita.

Eftir uppsetningu skal smíða tengiganga og ganga frá tengingum milli húshluta, leggja raflagnir og lagnir í mannvirkin, ytri og innri frágangur þ.a. húsin afhendist fullbúin til notkunar.

Á verkstað verður verkkaupi búinn að jarðvegsskipta undir húsin, leggja lagnir í jörðu og raða upp steyptum sökkulbitum.

Nokkrar stærðir í verkinu:

– Gólfflötur (nettó) 350 m2
– Rúmmál (brúttó) 1.300 m3
– Forsmíðaðar húseiningar (brúttó) 280 m2

Verklok skulu vera eigi síðar en 30. desember 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá þriðjudeginum 27. júlí 2021 í gegnum útboðsvef Mannvits:
https://mannvit.ajoursystem.is/

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 föstudaginn 13. ágúst 2021. Ekki verður haldinn opnunarfundur, niðurstöður útboðs verða sendar bjóðendum.

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar