Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með byggingu brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg (3312) og við Auðsholtsveg (340-01) og gerð reiðstígs.
Nýja brúin verður verður til hliðar við núverandi brú, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum.
Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 26. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. ágúst 2021.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.
Þriðjudaginn 31. ágúst 2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.