Home Fréttir Í fréttum Samkomulag landeigenda Grafar og Vegagerðarinnar

Samkomulag landeigenda Grafar og Vegagerðarinnar

70
0
Tölvumynd af framtíðarvegi yfir Þorskafjörð og út Teigsskóg að vestanverðu.

Vegagerðin og landeigendur Grafar í Þorskafirði náðu í gær samkomulagi um vegalagningu í Gufudalssveit.

<>

Þar með er langþráðum áfanga náð í deilu sem nær fjölmörg ár aftur í tímann, en nú hefur framgangur nauðsynlegra samgöngubóta á sunnanverðum Vestfjörðum loks verið tryggður.

Eigendur Grafar voru þeir einu sem ósamið var við. Deilur hafa staðið um framkvæmdina vegna áhrifa á umhverfið.

Við endurupptöku málsins nú síðustu ár hefur í allri hönnun verið lögð höfuðáhersla á að leita leiða til þess að lágmarka þau áhrif eins og nokkur kostur er.

„Vegagerðin og eigendur Grafar eru á einu máli að standa vel að verki og vanda frágang eins og kostur er.

Landeigendur Grafar hafa staðið gegn framkvæmdinni með hagsmuni náttúrunnar að leiðarljósi og verið í forgrunni í þeirri baráttu.

Í kjölfar niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi framkvæmdaleyfi hafa þeir hins vegar unnið að því með Vegagerðinni að laga framkvæmdina sem best að landi innan landamerkja Grafar þannig að hún hafi sem minnst inngrip í náttúruna,“ segir í tilkynningu.

Framkvæmdir hófust sumarið 2020 með endurbyggingu Vestfjarðavegar frá Skálanesi í Gufudal sem gert er ráð fyrir að ljúki nú á næstu vikum og verður þá rúmlega fimm km kafli Vestfjarðavegar lagður bundnu slitlagi.

Nú í vor hófust svo framkvæmdir við þverun Þorskafjarðar frá Kinnarstöðum að Þórisstöðum og er bygging 260 m langrar brúar að hefjast og er gert ráð fyrir verklokum 2024.

Næsti áfangi verksins er bygging Djúpadalsvegar, rúmlega fimm km langs vegar sem mun tengja Djúpadal við nýjan Vestfjarðaveg.

Útboð var auglýst 21. júlí síðastliðinn og gert er ráð fyrir að þeim framkvæmdum verði lokið sumarið 2022. Frekari útboð verða svo auglýst í haust.

Heimild: Skessuhorn.is