Home Fréttir Í fréttum 17.08.2021 Djúpivogur – Endurbygging hafskipabryggju 2021

17.08.2021 Djúpivogur – Endurbygging hafskipabryggju 2021

100
0

Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í endurbygging hafskipabryggju á Djúpavogi.

<>

Helstu magntölur:

· Reka niður 140 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ13-700.

· Ganga frá stagbita og stögum.

· Steypa 54 akkerissplötur.

· Steypa um 183 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

· Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 14.000 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 20. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. ágúst 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.