Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Hringvegur (1), Fossvellir-Lögbergsbrekka, eftirlit (EES)

Opnun útboðs: Hringvegur (1), Fossvellir-Lögbergsbrekka, eftirlit (EES)

135
0

Vegagerðin bauð út eftirlit með útboðsverkinu Hringvegur (1), Fossvellir – Lögbergsbrekka. Verkið felur í sér tvöföldun Suðurlandsvegar á um 3,3 km kafla ásamt gerð hliðar- og tengivega og undirganga fyrir ríðandi umferð.

<>

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í byrjun árs 2022.

Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 13. júlí 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu.

Föstudaginn 16. júlí 2021 var verðtilboð hæfra bjóðenda opnað. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.